fimmtudagur, október 09, 2003

Komin heim, ekki enn búin að finna út úr þessu kommentakerfi en hey...var að koma af pöbbanum, þar sem við vitleysingarnir sem vinnum saman settumst niður en ég fékk mér ekki pint oh nei góða stelpan þurfti að fara snemma heim og hvað gerði hún svo..fór á netið....læra læra vygotsky, kanner, skinner, mcgee ofl, að síast inn í hausinn á mér. Sara þú kannski kannast við eitthvað af þessu. Vá hvað verður gaman þegar við verðum báðar orðnar kennarar og getum gefið hvorri annarri góð ráð eins og sannar kellingar. Allavega....
Fór í svona bubblubað í gær með svona bath bomb og það var eitthvað helvítis glitter glimmer í því og það er búið að vera í augunum á mér í allann dag, ég er bara búin að gera með eitthvað eighties disco í augunum arrrggg en líka smá skondið, lit í tilveruna. Og eitt í viðbót, snilld með Arnie, en eins og margir vita þá er ég Arnie aðdáandi mikill. Heimurinn er að batna, en hann á víst að vera með mikla leiðtogahæfileika sem er alveg nauðsynlegt ef maður á að meika það í U S of A, vantar bara Puff Daddy sem forseta og við getum sofið rólega......Endilega athugið eftirfarandi heimasíðu www.mulletsgalore.com allger snilld!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home