þriðjudagur, október 21, 2003

Verð bara að minnast á litla yndið, Álfabikarinn, ohhh alger snilld. Endilega athugið myndina, hún sjálf selur hann..http://www.thekeeperstore.com/tk/picture/ OK væmnitítlur, ælið á ykkur en þið óhræddu PRÓFIÐ!!!!!

Sara talar um kuldann í France, sama hér í Lundúnaborg...brrr drullukuldi, hitunin ekki komin í gang en 10 stig á mælinum, hvernig stendur á þessu (já já ég veit próffar, rakastigið er öðruvísi)????? Annars er ég komin í smá jólaskap og var næstum búin að kaupa jólaskraut áðan (????) Setti bara í staðinn þéttilímband á svalahurðirnar til að koma í veg fyrir að það blási inn...jebb jebb merkilegt líf...Einhverja hugmyndir um hvar við ætlum öll að hittast næsta sumar, ég er að hugsa um einhevrs staðar HEITT!!! Já takk Sakna ykkar allra (veit ég er næstum því sama og að tala við sjálfa mig en það er í lagi að þykjast eiga fullt af vinum sem lesa þetta..)