laugardagur, maí 14, 2005

Þessi færsla er tileinkuð Björnssyni einum hér í bæ er fæddist í dag klukkan 15.02 að staðartíma. Til hamingju Bjössi og Birna með litla húninn :) Bestu fréttir sem ég hef fengið í dag hoho! Alveg hreint frábært, vel vandaður drengur án efa, miðað við gæði foreldranna!

Þess má geta að á þessum degi árið 1945 fæddist George Lucas hinn knái og einnig Fab í Milli Vanilli. Þennan dag árið 1702 ákváðu Englendingar og Hollendingar að fara í stríð við Frakka og Spánverja. Vaseline var fyrst selt þennan dag árið 1878 og þótt ótrúlegt sé þá fæddust Mulder og Scully (leikararnir) bæði þennan dag með nokkrum árum á milli. Ekkert spooky en samt þó....Engin tilviljun þetta heldur með vaselínið, 100 árum síðar og 23 dögum fæddist ég.


1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

That's a great story. Waiting for more. » »

6:09 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home