miðvikudagur, mars 29, 2006

Það hafa náttúrulega allir prófað Google Earth og það er orðið svolítið langt síðan ég prófaði það fyrst. Þá svona að gamni mínu skoðaði ég staði sem ég hef annð hvort komið á eða búið á. Það var gaman. Það sem er ennþá skemmtilegra er að nota það núna þegar við skipuleggjum daga okkar í New York. Þvílíka pjúra snilld.

Við B ræddum um það áðan að þó maður eigi kannski ekki að gera það og ætti að reyna að komast hjá því að eyða lífinu í að bíða eftir einhverju sérstöku, þá gerir maður það alltaf. Lífið eru bara fjölmargir afar mismunandi áfangar. Skóli, vinna, börn, gifting, eftirlaun og jarðarfarir. Svo öðruvísi áfangar eins og utanlandsferðir, sumarfrí, helgarfrí, páskafrí, próf og svo fram eftir götunum. Maður er alltaf að bíða eftir einhverju. Núna bíð ég mikið og mjög erfiðlega eftir þessu langþráða fríi mínu. Að vísu mun ég vera með tölvu með mér og mun skoða ákv. verkefni td. á leiðinni í langa fluginu. Einnig mun ég fara í eina til tvær stuttar heimsóknir í sérskóla sem ég hef áhuga á að skoða. Rosalega spennt fyrir því, margir myndu nú halda að ég væri galin en svona er þetta bara með mig.

Anyways, þetta er myndavél sem við erum að skoða, kannski kaupum við hana og þið fáið myndir beint, fresh from the market :)

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Búin að vera að hugsa mikið til þín, öfunda þig ekkert smá hvað það styttist í NY. Ég var einmitt mjög dugleg á google earth áður en ég fór út og var að skoða hvert átti að fara og hvar það væri og so on. Alla vega góða ferð út og skemmtið ykkur vel. Hlakka til að lesa ferðasöguna.
Kveðja
Kristín Inga

12:13 e.h.  
Blogger Huxley said...

Já og þú sem ég talaði við í gær: ekki að grínast! Mun ekki opna mig aftur fyrr en þú lætur vita af þér. Já mikil ábyrgð.

3:26 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

What a great site action games 1993 cadillac allante Zithromax information alcoholic beverages porsche new hair loss product Laptop rating toshiba 1997 dance hits Judgements on unsecured debts meridia Graco travel system reviews Easy webhosting tripod Jenna jameson boob buy fiorinal online no prescription Acuvue contacts online results

1:36 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home