mánudagur, janúar 19, 2004

ja hérna...nú er ég alveg pottþétt að enginn kíkir á þessa síðu en ég get sjálfri mér um það kennt, hef hér grafið mína eigin gröf. Hef bara ekki haft nægann tíma til að setjast niður og hugsa hvað ég get skrifað, hausinn á mér þessa dagana er að springa. Fólk er búið að koma í heimsókn, jebbs Saran og Friðgeirinn komu, mjög gaman gaman. Svo fór Bjarki 6. að mig minnir og ég kem 31.janúar. Við erum komin með íbúð ogvonandi ég með vinnu líka..já já voða fullorðin hohoho. En svo er hún Siobhan að fara að giftast á föstudaginn næsta (ég bý með henni og vinn líka með henni), mikill undirbúningur í kringum þá vitleysu. T.d. gæsakvöldið hennar á laugardaginn, gaman, tjellingafögnuður með fullt af fyndnum leikjum og typpym út um allt..nenni ekki einu sinni að fara út í það. Svo var farið á bar og dansað hohoho ég var víst "wild" hohoho mesta grínið hjá mér, bumpin ´n´grindin hohohohoho.
Fyrir utan að pakka og reyna að láta Samskip sækja dótið þá er allt gott og blessað...eherm...sit núna á náttsloppnum og bíð eftir að þeir láti mig vita hvort þeir komi í dag. Ekki enn búin að átta mig á að ég er að fara að hætta í vinnunni minni...vinnu sem ég hef helgað lífi mínu og sál síðustu þrjú og hálfa árið, ég segi er ekki að átta mig á því ég finn það ekki enn, en ætli tár eigi ekki eftir að falla...kveðjuparty með krökkunum og svo meira party með samstarfsfólki...nóg í bili þarf að skella mér í sturtu eða skoða fleiri klósettsetur...fann eina mjög flott og fékk samþykki Bjarka til að kaupa hana...meira um það seinna.