föstudagur, mars 04, 2005

Andvaka og get ekki snýtt mér...
Myndin sem ég talaði um fyrir neðan er þessi.
Svo sá ég Constantine í bíó...já fyndin...hoho og svo þessa heima...líka fyndin. Alltaf að horfa á eitthvað, nota sem sagt augun mjög vel.
Fór á Breakbeat kvöld í gær, jah ekki heilt kvöld, við komum mjög seint. Alltaf fínt á fimmtudagskvöldum. Svo uppgötvuðum við Kings pizza, sem er Devitos afsprengi held ég, þar sem sjoppa var í Hafnarstræti. Afskaplega góð slice, og stór! Namm, bumba bumba...
Bíð núna eftir að geta farið til mömmu að prenta út glósur fyrir líffæra og lífeðlsifræði, en er að fara í skyndipróf í næstu viku. Skyndipróf er skondið orð, ekki notað það síðan fyrir löngu. Svo eftir það, bónus ef það er búið að opna og kaupa kræsingar fyrir helgina. Svo kannski hár eitthvað...lemur í kjós....En atburðir sí'ustu helgar og viku gerðu það að verkum að hárið mitt er litað mjög fallegum kastaníubrúnum lit, allstaðar nema nokkrir lokkar sem eru grænir...

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hvaða hvaða þú varst bara í stíl við fallegu grænu peysuna þína mér fannst þu allavega sæt
sunna

7:45 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Híhíhíhí... ég get ekki varist brosi við tilhugsunina...btw Loreal 8.3 er komið í Lyf og Heilsu ;)

11:22 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home