laugardagur, febrúar 05, 2005

Svo er líka ekki allskostar slæmt að hlusta á Beta Band svona daginn eftir...í rauninni er hægt að hlusta alltaf á BB..ekki sammála. Æ svo mikil tónlist, svo lítill tími...nei nei.

Mundi svo í sturtu áðan að ég dreymdi draum (nú gerir maður svoleiðis við drauma...) En hann hlýtur bara að tengjast einhverri umræðu gærkveldsins. Ég (í draumnum fræga) dró eitthvað "dóterí" út úr maganum eða naflanum to be precise. Þetta var ekkert stórt, ekki bara eitthvað eitt og það var einhver manneskja með mér og við skoðuðum þetta og sáum lítið fóstur þarna ásamt einhverjum vefjum og svoleiðis...

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Namm mig langar í vöflur, svona belgískar. Spurning um að bjóða upp á þannig í næsta siggu saumó. Mig langar líka á djamm og í vín með ykkur kellingunum, og að dansa. Mig langar voða margt eftir að lesa þetta blogg hjá þér Laufey.
Kv. Birna Hlín.

7:11 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home