miðvikudagur, janúar 05, 2005

Jæja dramað heldur áfram...
Það var hringt í Bjarka áðan og skilin voru eftir skilboð, þau voru einhvern veginn á þessa leið:"Sæll Bjarki, þú getur búið þig undir að verða kettlinga-afi 'hlæ hlæ'..uuu ég kom að Loka ykkar og Freyju minni í svaka heavy action hérna á stofugólfinu áðan en ég hélt hún væri hætt að breima en svo var nú greinilega ekki 'hlæ hlæ' en ég læt þig vita betur"...
Já við gætum orðið afi og amma, barnið okkar er ekki einu sinni 1 árs!!! Við gerðum svooo mikið grín af honum þegar við komum heim, ýmsar myndir komu upp í hausinn og mikið var hlegið! Mister Lover lover úú...

S.s. Sú sem hringdi er "mamma" Freyju, en Freyja er kisustelpa jafngömul Loka og þau hafa verið vinir síðan Loki fékk að fara út. Hún býr eiginlega í sömu götu og við.
Tja, vinir segi ég núna, greinilega aðeins meira ;) en já mjög sæt og fín stelpa, við samþykkjum hana fyrr Loka!

Er ég eða erum við að verða óþolandi með hvað við tölum mikið um og jafnvel við Loka??...neh...

9 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þið eruð alveg klikkuð!!!!
Kv "stóri" bróðir

9:21 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Jæja, gott að prinsinn sé fundinn. En hva, þýðir þetta þá að maður sé að verða afasystir, eða hvernig er það eiginlega...

10:21 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

já þið eruð einsog óþolandi fólkið sem talar bara um börnin sín og ekkert annað kemst að hjá þeim hummm

sunna

3:49 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hehe, Það er nú bara gaman að lesa kattasögur ;) - Eva.

7:39 e.h.  
Blogger Huxley said...

Nei er búin að ákveða að við erum bara ekkert leiðinlegt að tala svo mikið um hann, allt í lagi að tala aðeins um börnin sín ha Sunna! ;)

7:50 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

well sko almar segir what the hájtssss sem þíðir what the fukk hjá honum og embla segir prugt sem þíðir prump ,,, er það svona sem maður á að segja frá eða hvað

9:49 f.h.  
Blogger Huxley said...

Einmitt!! Þú getur þetta líka, þetta er frábærlega pottþétt frásögn af börnunum sínum :)

5:17 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

°hehehehe ja ég skal segja prupusögur

5:25 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Very nice site! » » »

3:26 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home