föstudagur, september 14, 2007

Þrisvar í viku er ég mætt klukkan 6.20 sharp í Hreyfingu í svaka prógram. Þetta þýðir að vekjaraklukkan er stillt klukkan 5.30...það er ef ég er sofnuð en í nótt sváfum við skötuhjú ekkert.

Mér finnst þetta æðislegt, hef alltaf verið fljót að vakna og svo þetta að skella sér út í crispy haustmorguninn þegar það er enn smá dimmt. Á meðan við erum í tímanum birtir smám saman og svo á endanum eða í slökunarhlutanum, kemur sólin upp. Aldrei hefur mér fundist eins gaman í "leikfimi", tímarnir þjóta áfram og ég get sagt ykkur það að kvöldin áður hlakkar manni beinlínis til! Í næstu viku ætla ég svo að bæta einu degi við og setja Hrafnkel í gæsluna. Verður spes en mikið ofsalega höfum við gott af þessu!

Ekki skemmir svo fyrir að árangurinn er þegar farinn að láta vita af sér, vigtun á föstudögum og ég fór brosandi út í morgun ;) Ég ætla ekki að vera gróf og segja "bumban burt 2007" en hún er samt að fara á næstu ummm mánuðum ;) .

Ohh hvað ég er orðin mikil kona! :)

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

halló kona:)
já, það er alveg nauðsynleg að gera eitthvað gott fyrir sjálfan sig, og þegar maður hefur komist á það stig að þykja ekki að maður verði að fara heldur langar að fara, þá verður þetta allt svo miklu léttara:)
knúsknús

9:44 f.h.  
Blogger Huxley said...

Þetta er svo brjálæðislegt en svo ótrúlega gaman-maður fer í einhverja svona vímu þegar tíminn er búinn! Í morgun var ég aðeins lúin og aðeins lengur að koma mér í gang en skellti þjálfarinn ekki bara fram einhverjum mega-tíma og ég var svo ánægð með mig þegar ég var búin! Blaaahhh!

2:38 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

vá - ánægð með þig stelpa :) :)
En shittttt hvað þetta er snemma dags!!

Hafið það gott - vonandi sjáumst við brátt!

Kv.
Saraba

11:02 e.h.  
Blogger Eva said...

Dugnaður í þér kona!!! Átt sko alla mína aðdáun að geta þetta.

12:33 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home