miðvikudagur, desember 28, 2005

Ákvað að setjast aðeins niður með ykkur og leyfa ykkur að lesa mína þanka. Er búin að fara svona nett yfir íbúðina, ekkert mikið þar sem allt var svo fínt, en annað kvöld kemur vinahópurinn í matarboð og það verður ekkert slor skal ég ykkur segja! Við verðum að ég held 11, það vantar Söru og Fred í France en svo þorir ein vinkonan ekki að sýna nýja kæróinn...kannski ekki skrýtið heheh.
Það verður forréttur og aðal og eftir og svoleiðis, mjög líkt og í fyrr en þá var þetta á nýjársdag hérna. Já þá var maður soldið glær og atvinnukokkurinn, Fred, var annars huga að horfa á boltann. En maturinn var gorgeous! Og náttlega félagsskapurinn brilliant. Þetta er svo gaman...En við megum nú eiga það að við erum öll afar myndarleg og skemmtileg svo ég segi nú sjálf frá... hihi.

Var áðan að ryksjúga og fannst vélin eitthvað voðalega hávær, en hélt áfram. Svo var mér alveg hætt að lítast á blikuna og slökkti..djöö hvað mér brá! Þá var þetta bara flugvelda og mega frakettu sýningin í Perlunni! Fúff fúff og feija.

Svo langar mig að koma með eitt sorglegt, man ekki hvort ég skrifaði um þetta síðast þegar þetta var í fréttunum en núna á aðfangadag að ég held kom upp nýtt svona mál. 79 ára kona fannst látin í íbúð sinni og hafði sennilega verið þar í 3 vikur!
Ég spyr: Hvar í fjandanum eru helvítis ættingjarnir, vinir og önnur skyldmenni? Enginn á bara engan að og það er okkar skylda og ekkert annað að fylgjast með, sérstaklega ef við vitum mæta vel að þessir einstaklingar búa einir. Amma mín og afi minn eru einmitt nákvæmlega jafn gömul og þetta myndi, og ég get verið 100% um, aldrei gerast hjá okkur. Aldrei aldrei aldrei. Er svo hneyklsuð og sorgmædd, ömurlegt að ævi hennar hafi endað svona. Bara tárast þegar ég hugsa um þetta. Skil þetta ekki, 3 vikur.

Æ úff over and át.

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Já, alveg er ég sammála þér! Svona á bara ekki að eiga sér stað. Gleðileg jól annars og góða skemmtun annaðkvöld.

9:18 e.h.  
Blogger Huxley said...

Hey já og takk fyrir það! Gleðileg jól sömuleiðis! :)

9:53 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Pistillinn byrjaði svo vel og skemmtilega að ég gat ekki annað en séð þig fyrir mér en svo kom hitt og ég svona hugsaði mig um augnablik.

11:37 e.h.  
Blogger Huxley said...

Jábbs svona er þetta ekkert nema plúsa og mínusar...

12:34 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

já þetta er alveg hræðilegt með greyið konuna :( og líka á þessum tíma árs...
en gvöð hvað ég hlakka til að koma til ykkar í kvöld í fínu jólaíbúðina ykkar og borða og tala og hlusta og drekka og dansa og sjá og heyra og og og úff vá hvað ég á eftir að gera margt skemmtilegt í kvöld :D
luv ds*

12:58 e.h.  
Blogger Huxley said...

Tja...smá slappelsi í dag, en þú smitaðir mig af einhverju ehehe en ég er búin að ÁKVEÐA að vera ekki veik :)

Já sniglar og kavíar hafa greinilega svona góð áhrif á mallann ha!!

9:27 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Wonderful and informative web site. I used information from that site its great. how to give a female oral sex sulfer acne treatment

11:47 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home