miðvikudagur, júní 14, 2006

Ég tók mig til um daginn-reyndar tók ég mig ekkert til né planaði þetta eitthvað sérstaklega heldur gerðist þetta svo mikið óvart að ég er enn að átta mig á því að þetta hafi verið ég sem gerði þetta.
Málið er að ég var svo til andvaka og átti ekkert til að horfa á. Rak svo augun í sjöttu seríu Americas Next Top Model. One thing lead to another og nokkrum tímum síðar var ég búin að horfa á 11 þætti....ég spólaði að vísu mikið og oft áfram, en þetta varð að svona sjúklegu mission og áður óþekkt þráhyggjueinkenni komu þarna berlega í ljós. Ég varð hreinlega að vita hvort heil sería gæti verið svona svaðalega prumpurassleiðinleg og hvort hver einasti kúlurassaþáttur væri eins!
Niðurstaðan, júbb hún getur það og þeir voru það, and a half! Mér finnst ég hafa tapað hluta af mér og að ég geti aldrei endurheimt hann. Líkt og þegar þú sturtar óvart öðrum uppáhalds eyrnalokknum þínum niður. Ekki sjéns að ná í hann! Það væri annað ef hann færi niður vaskinn, þar væru allavega 67% líkur að hann væri í vatnslásnum og okkur er nú öllum kennt á leikjanámskeiðum hvernig á að opna þannig. Það held ég nú.

Annars var ég að komast að því að það er verið að plata okkur hérna á þessu blessaða skeri. Alveg pottþétt á því að á meðan við (samlandar) áttum að vera upptekin að horfa á Grandma´s boy, Scary movie 4 eða aðra eins gæðabíómynd-þá vorum við svæfð eða réttara sagt dáleidd og tíminn jafnvel stöðvaður. En ég er svo klár að ég sé í gegnum þetta alheimsplott "þeirra", enda var ég ekki að horfa á þessar myndir. Ég læt ekki plata mig, það er ekkert komið sumar, það er ennþá bloody ass haust. Ekki segja mér að þú lést plata þig!!??

Annað, ef ykkur langar í góða (ó)sumartónlist þá mæli ég með The Shangri-Las. Þarf ekkert að útskúra þær neitt-bara skemmtilegt og búið að vera til í safninu lengi.

5 Comments:

Blogger Huxley said...

Já mér finnst væmið betra en kolsvart-þá er allavega bloggið í stíl við íbúðina ekki fötin mín...já allavega for now

6:04 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hey bannað að dissa American Next Top Model... miðvikudagskvöld eru heilög á mínu heimili.... Það er sko ekkert meira takký en þessar stúlkur og ekkert smá sem þær geta vælt og drullað yfir hvor aðra.... Ég horfi semsagt á þetta í þeim tilgangi einum að rannsaka mannlega hegðun (annars er þetta á mörkunum að vera mannlegt..) ;o)En hef mjög gaman af þessu um leið... kannski ekki af ástæðulausu sem góður vinur minn segir mig hafa "very high tolerance for entertainment"! (hann er útlenskur sko...)

ANTM RULES!!!

3:16 e.h.  
Blogger Huxley said...

Já tilgangurinn var sá sami hjá mér-að kanna hversu hundleiðinleg mannleg hegðun getur verið. ;)

3:42 e.h.  
Blogger sunns de la planta said...

ojjjjjj get ekki horft á þetta rusl

9:01 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Wonderful and informative web site. I used information from that site its great. Oxycontin addiction &apos onclick Hair loss option

9:31 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home