laugardagur, júlí 22, 2006

Við ákváðum, þar sem við fórum ekki út úr bænum um helgina, að bjóða til smá gleðskaps í kvöld. Reyndar er risastórt Viðeyjarteiti líka en við landkrabbarnir höfum það bara gott hérna hjá okkur. Góðmennt og það þarf ekki að ferðast í ferju hingað. Þannig að, ef þú/þið eigið leið framhjá í kvöld endilega kíkjið við. Segið dyraverðinum bara leyniorðið sem er millinafnið mitt á dönsku.

Túrílú!

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Jæja, segðu okkur nú frá partýinu !!!!
Þegar maður auglýsir svona á netinu þufa að vera góðar úskýringar :)
sdo

10:43 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home