föstudagur, ágúst 18, 2006

Fínt mikið að gera í vinnunni en þó stend ég mig oft að því að standa bara og snúast í hringi. Stofan að verða tilbúin og sumir sem koma niður í heimsókn commenta iðulega á þá staðreynd að það sé enginn gluggi og halda að mér finnist þetta voða slæmt, en mér finnst það bara alls ekki. Þarna ætla ég mér stóra hluti (grín) og líkar bara vel við þetta góða pláss.

Ætluðum upp í bústað um helgina en hann er upptekinn, smá vonbrigði þar sem við erum miklu meiri sveitalúðar en svona hinn meðalmaður. Pínku súr út af þessu. En læri bara hérna í staðinn en fékk einmitt kennsluáætlun í einu fagi í gær og á heldur betur að lesa áður en ég mæti í næstu viku. Og haldiði ekki að okkur hafi hefnst fyrir allt vælið í sambandi við fávitann á annarri hæðinni, jú-hann ætlar sem sagt að framleigja certified kynlífssjúklingi íbúðina. Og þetta er ekki grín.
Það varð svaka lögguhasar hérna í blokkinni vegna ofurteitis á aðfaranótt þriðjudags-meira að segja konan í blokkinni á móti hringdi á lögguna. Bý ég í Keflavík? Mér er spurn.

Anyways, fullt að gerast, stjórn starfsmannafélags skólans er víst eitt af því, en mér til mikillar furðu var ég kosin í það félag/ráð. Hvað er fólk að pæla??

Farin í fýlu en ekki lengi, langar svo út úr bænum......

4 Comments:

Blogger sunns de la planta said...

þið verðið bara að reyna að yfirgnæfa kynlífsdrjólann með ykkar eigin látum .... með mucik eða lu syngur eða ykkar kynlífslátum eða sjónvarpi eða umm veit ekki meira

12:21 e.h.  
Blogger Huxley said...

Já höfum gert þetta allt-en það er náttúrulega ekki svo tillitssamt við hina nágrannana you see :) Og svo kenndi mamma mér að ef ég geri eins þá er ég alveg jafn slæm og hinn

1:31 e.h.  
Blogger sunns de la planta said...

stundum verður maður bara að taka málin í sínar hendur því sumt fólk skilur ekki neittt.. skillururuur

9:49 e.h.  
Blogger Huxley said...

Ja hún skilur allavega ekki, settum bara tónlist á áðan-það er ekkert of snemmt fyrir aðra að hlusta á smá eðaltónlist-annars heyrist ekkert svo mikið úr okkar íbúð meira í hana

fyrir utan það að það lá einhver bókstaflega á bjöllunni okkar í morgun, svo þegar b fór framá gangþá var þetta einhver gæi til hennar. asshole

11:13 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home