miðvikudagur, júlí 26, 2006

Bakið á mér fór í smá skrall á mánudaginn, ég veit væl væl en.... öll ráð eru vel þegin þar sem útilegan hefst á morgun! Ég er ekki vön svona bakeymslum en þetta er rugl, geng um eins og gömul kona og afar pirruð. Keypti mér ibufen-gel og dúndra svo inn á milli í mig verkjalyfjum. Kannski ætti ég að sleppa Baðhúsinu í dag?

Ferðaplanið er nokkurn veginn komið á hreint, Rvík-Akureyri og fyrsta nóttina þar. Svo Akureyri-Ásbyrgi og ein nótt þar. Þar á eftir brunað austur í Bakkagerði AKA Borgarfjörð Eystri og ein nótt í tjaldi þar plús tónleikar. Svo förum við suðurleiðina heim og tökum kannski eina nótt í Skaftafelli. Mikill hraði og mikið gaman enda fær samferðafólk mitt ekkert risafrí. En hver veit nema við brunum aftur í Ásbyrgi um Versló og hlýðum á Sigurrós ?? Spurning....

Bakráð takk, núna!

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

oh laufey þú ert alveg rosaleg....... gerir mig alveg mjög öfundsjúka með öllum þessum skemmtilegu útilegum þínum, humm humm.... ég kem með í Ásbyrgi um versló á sigurros!
sdo

12:08 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home