sunnudagur, september 24, 2006

Einhvern tíma verður allt fyrst sagði einhver ofsa fróður. Eða það held ég. Ég er alltaf, sama hversu snemma ég byrja að vinna í verkefnum, á síðasta snúing að skila þeim. Ég er alveg vön því og finnst óþarfi að eipa úr stressi, sérstaklega þar sem ég veit að þetta hefst allt. En núna um helgina lenti ég í svolitlu sem ég hef ekki lent í áður. En það er ágætt kannski (voða jákvæð) að ég upplifi svona allavega einu sinni. Læri af þessu og þetta mun aldrei koma fyrir mig aftur.

Ég ljósrita alltaf eða bý til risa dagatal og set fyrir ofan tölvuna. Á það set ég inn alla skiladaga annarinnar og stroka svo út þegar ég er búin. Ekkert flókið en virkar svo vel að hafa þetta allt á sama stað og fyrir augunum á sér alltaf. En, þegar ég færði þetta inn í lok ágúst, gerði ég mistök. Ég skrifaði að ég ætti að skila tveimur verkefnum á mánudaginn (á morgun). Annað einstaklings og hitt hóp. Vegna hóp-samvinnunnar, las ég allt lesefnið fyrir hópverkefnið en skildi hitt eftir á hakanum. Þar ber ég bara ábyrgð á mér og ætlaði ekkert að stressa mig of..... En....því verkefni átti ég svo að skila í dag fyrir hádegi. Að þessu komst ég að rétt fyrir miðnætti í gærkveldi. Vúpps. Heill sólarhringur, akkúrat þessi sami og ég ætlaði að nota í það verkefni, bara ekki til. Eða svona þú skilur.

Og af því ég er svo klár (not) og multitasker, þá ákvað ég nú að eyða smá tíma í blogg. Ohh silly silly billy me.

Reyndar og til að toppa allt hef ég verið slöpp um helgina, fengið tugi blóðnasa og er farin að halda að líkaminn sé að afneita sjaldgæfa blóðinu mínu, tja það eða þá að líkaminn, Blóðbankinn og holræsakerfi borgarinnar séu í einhverju leynimakki. I don´t know.

5 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hættu bara að bora svona viðbjóðslega ógeðslega í nefi þá hættir þetta .... ráð í boði sunnu :)

8:51 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

jeminn eini....
ég sendi þér góða batni- og verkefnisstrauma!
vona að það hjálpi þér.
knús,
anna.

10:48 e.h.  
Blogger Huxley said...

Núna er þetta nefnilega ekki bor, bara sennilega kvef.... :( En ofsa leiðingjarnt skal ég ykkur segja

12:03 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ææææ hljómar ekki vel með nef-dótið... kannski þarftu bara að láta brenna fyrir... en ótrúlega mikið þú eitthvað sambandi við verkefnið... (bara róleg á því alltaf...) koss & knús sæta!!!

11:46 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég er nú bara að tékka hvort commentið mitt skili sér ekki alveg örugglega!!!! :-)

12:09 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home