miðvikudagur, júní 04, 2008


Keyptum ofsalega flott húsgagn í íbúðina í gær en fleira verður það ekki í bili. Ætlum að byrgja okkur upp í New York. Mig hefur dreymt lengi um Eames DSR stóla, get ekki ákveðið hvaða lit heillar mig mest og því kannski sniðugt að fá sér bara einn í hverjum lit. Sá svo í blaðinu í morgun að þeir kosta hérlendis ca. 27 þús. Kom pínku á óvart þar sem þeir eru að fara á 270 dollara úti plús/mínus nokkrir. Ohhh dreymi dreym.


Í gær kom restin af einkununumununum og ljóst að ég fæ að útskrifast ;) Er bara soldið stolt af þeim og leyfi mér bara alveg að monta mig...Lokaritgerðin gaf mér níu, hitt stóra námskeiðið/fagið gaf mér áttakommafimm og fyrir vettvangsnámið og verkefnin tengd því fékk ég staðið enda bara hægt að fá staðið eða fallið. Ætla barasta á halda upp á útkomuna ásamt þriðja tugnum á föstudaginn. Gleði gleði.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ sæta,
takk fyrir síðast, glæsileg veisla og glæsilegur árangur hjá þér!!
kisskiss
Eva

5:07 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

til hamingju með þetta allt saman.
skólann. árin og solleis.
hlakka til að hitta þig við tækifæri.
knús á ykkur.
anna gamla.

10:38 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home