fimmtudagur, janúar 24, 2008

Það var stiginn allsvakalegur dans hérna á gólfinu áðan. Fékk svar frá leikskólastjóra hérna í sömu götu og er drengurinn víst kominn með pláss strax eftir verslunarmannahelgina. Léttirinn er ólýsanlegur! Algjör draumur að geta haft hann í leikskóla hérna nokkrum húsum frá. Þurfum ekki einu sinni að fara yfir götu. Engin umferð, ekkert vesen. Svo erum við mjög sennilega komin með bestu hugsanlegu barnapíur þangað til ég fer í sumarfrí. Endalaust frábært!

Ætla ekki einu sinni að segja mitt álit á þessu jungle boogie sem er í gangi í borginni. Jungle boogie er kannski röng viðlíking, enda fer maður að hugsa um strápils og reggí tónlist við þessi orð. Aparnir eru þó á báðum stöðum, þ.e. í frumskóginum og þarna í steypta húsinu við tjarnarmallið niðri í bæ. Oj þeim, skammast mín ekkert lengur að segja frá því að ég hafi ekki kosið.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hæ og hó........ hvað er að gerast?????

9:20 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Sakna bloggsins hérna!

9:57 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home