föstudagur, janúar 27, 2006

Ég vil byrja á því að vekja athygli á tímanum. Einnig vil ég benda á að ég er ekki klikkuð heldur bara fed up og brjáluð. Ég verð ekki brjálæðisleg reið né sturluð oft, eiginlega aldrei og þetta veit fólk sem þekkir mig. En núna, núna er ég alltof reið. Vaknaði sem sagt klukkan eitthvað rétt að verða 5, við mestu stunu-apa-mongó-kynlífsafbrigðis öskurhróp sem komu að ofan frá karlhórunni og einhverri nýrri illalyktandi beyglu. Og hey þau eru enn að. Hann veit svo nákvæmlega að við heyrum ALLT og honum er svo drullusama. Óþroskaða, egósentríska, mannfýlan sú arna. En mig vantar ráð. Var áðan að hugsa um að hringja á bjöllunni en veit ekki hvað ég ætti svosum að segja og ég gæti sagt eitthvað fáranlega mikið reitt eitthvað og kannski séð eftir því en hey mér er að verða sama. Verð að segja eitthvað næst þegar ég sé hann. Bara verð.
Á eftir ætla ég að vera pirrandi nágranninn. Meatloaf er ágætur klukkan tja 10 á föstudagsmorgnum. Hvaða dagur er betri til þessi að viðra hann eða humm eitthvað annað. Á reyndar ekki Meatloaf en ég finn eitthvað þungt og gott. Eitthvað sem vekur mann og kemur manni í gírinn. Veit ég á ekki, því eins og mamma sagði alltaf, þá er maður bara alveg jafn slæmur. En ég ætla að vera slæmur. Ég er þó allavega ekki lausgyrtasta manneskja miðborgar Reykjarvíkur.

10 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ég mæli með að vera slæmur..
þetta kallar bara hreinlega á stríð !!! mannfjandinn !#$!%!&&
he he he segi bara sá hlær bezt sem síðast hlær ! go laufey go laufey
d*

12:21 e.h.  
Blogger Huxley said...

já er það ekki? er ennþá pirruð!

4:11 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ERTU AÐ GRÍNAST........ geturðu ekki sofið með headphones á svona stundum :::
sdo

4:29 e.h.  
Blogger Huxley said...

En ég bara vaknaði, var sofandi voða vært og er það alltaf, en síðan bara búmm bammm bamm og þá á ég erfitt með að sofna aftur ;)

7:22 e.h.  
Blogger Eva said...

Djöfull væri ég búin að gera eitthvað! Sem betur fer fær minn nágranni ekkert gott á nóttinni þar sem hann er ekki kenndur við kvenmaninn ennþá.

En Lætin eftir kl 22 á kvöldin og stundum á nóttinni eru hræðileg.

Mæli með að setja miða gegnum lúguna(póstkassann) eða einfaldlega banka upp á hjá honum og spyrja hann hvort hann kunni ekki að virða lögin???

En gerðu endilega eitthvað ljótt :D

10:33 f.h.  
Blogger Huxley said...

Hahha múgsefjun! ;) Málið er, að ég segist hata hann en hann er vænsta skinn-sko þannig lagað, bara spólgratt vænsta skinn :) en ég geri e-ð.....

11:47 f.h.  
Blogger Eva said...

Sama hversu mikið graða besta skinn hann er þá á það ekki að bitna á íbúum hússins! Hvernig ætli honum þætti það ef þið tækuð ykkur til og væruð að alla nóttina í heila viku með látum þá er ég sko að tala um með flenginum, rúmgafli - the works ;) Væri gaman að sjá svipinn á honum eftir þá vikuna!

2:19 f.h.  
Blogger Huxley said...

Já og á okkur hahahha ;)

2:37 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Very nice site! » » »

2:57 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

best regards, nice info »

11:36 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home