föstudagur, janúar 13, 2006

Já hvernig líst þér á? Þetta tók smá á, þar sem ég kafaði eftir þessu á botni veraldarvefsins. Var ekki að fíla öll hin template-in. En þá fann ég þetta. Bjútí! Alveg eins og veggfóður drauma minna!

En á tímabili leit ég svona út
The image “http://www.mikescovel.com/stressed.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
En þó bara í 2 mínútur. Var fljót að ná mér niður.

Svo verð ég að afsaka eitt, en án þess að ég ætli að hætta því. Veit að málfar mitt er skrýtið en það verður það áfram. Ætla ekkert að breyta því. Tók bara allt í einu eftir því að ég sletti, brengla ensk orð og nota æðifögur íslensk orð. Allt í einni skál. Það verður bara að hafa það.

Ætla að liggja í leti og pínku slappelsi í kvöld.
Finn mér eitthvað að horfa á og svo naga ég á mér táneglurnar.
Svona eiga sum kvöld einfaldlega að vera.
Svo var ég að hugsa um að fara að setja inn allt sem geristfyrirmig. Á það til að vera dálítið seinheppin en mig langar til að fylgjast aðeins með þessu. Kannskifinn ég eitthvað mynstur. Kannski ekki. Ég ætla hinsvegar ekkiað fara að leyfa fólki að fylgjast með vigtinni eins og er vinsælt hjá mörgum. En get sagt, bara svo þið getið sofið rótt, að hún er farin að færast aðeins neðar.
Gott mál.
Það er kannski bara kúkurinn?
Hmmm...
The image “http://www.bowzerbird.com/flash/flashanimations/poop.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

3 Comments:

Blogger Eva said...

Flott útlit hjá þér Laufey :)

Og varðandi að setja mynd, ég skal bara fara aftur sömu leið og segja þér svo :=

9:20 e.h.  
Blogger Eva said...

Ah, ef þú ferð á www.blogger.com og skráir þig inn, þá sérðu að til hægri er hægt að gera: Edit profiel, þar geturu sett inn ýmsar upplýsingar og myndir og þess háttar :)

9:22 e.h.  
Blogger Eva said...

Eitt enn :p Gangi þér vel með vigtina! Ég á í sömu samningaviðræðum, eða allavegana svipuðum...

9:23 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home