miðvikudagur, febrúar 15, 2006

Draumar eru svei mér kynlegir. Oftast dreymi ég eitthvað algerleg út í hött. Kannski eitthvað sem tengist einhverju á afar afbakaðann hátt. Oftast eru draumarnir steypa. Bara ekkert somehow. En svo er það stundum sem ég dreymi mjög raunverulega um hluti sem gætu alveg gerst en hafa ekki gerst. Well, ekki nema ég sé berdreymin og ef svo er þá er allt, allt í einu orðið svo miklu fyndnara.....og skemmtilega snúið í sápukúlunni minni.

Allavega, ég dreymdi í gær um einn af yngri kennurum skólans og var hann að kyssa samkennara okkar, konu sem sagt. Hún er þó nokkuð eldri en glæsileg nonetheless, enda verða konur ekkert ómyndalegri með aldrinum.
En, kossinn var í skólanum og ég var nálægt og hann var svo einlægur eitthvað og já raunverulegur. Svo var ég smá stund að átta mig á því þegar ég vaknaði, hvort þetta væri draumur eður ei. Var í allan dag að hugsa um þetta en ákvað að segja þeim þetta ekki. Held þeim finnist ég alveg nógu skrýtin ;Þ
Kannski voru þau bara að æfa sig fyrir kossakeppnina í Peking?

Jább kynlegir kvistir. Er búin að vera eitthvað svo lúin þessa viku. Ástkæru únglingarnir mínir hafa verið svo grumpy eitthvað þessa vikuna en það er náttúrulega ekki að sakast útí þau. Það er ekki eins og ég hafi verið síglöð og samtarfsfús þegar ég var á sama aldri. Þetta eru bara lönb og gvöööð hvað það er oft erfitt hjá þeim.

Einu sinni var maður sem var svo lítill að hann var hola.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hæ esskan
æ hvað það væri nú gaman ef við værum að vinna með sömu nglingana í sama skólanum.... hhmmm
Og mér finnst unglinga-kærustupörin svo sæt, alveg æði... svolítið skrýtið en ég held að ég hafi bara næstum orðið smá abbó útí þau um daginn þegar ég var að glápa á þau!!! hehe
kiss
sdo

10:22 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

kíktu á meilið þitt honey !
ds*

6:20 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Excellent, love it! »

2:41 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Best regards from NY! Extreme irritability bipolar lexapro Liquidationwholesale fashion jewelry 2b 22boa merchant account 22 12generic lowest price viagra protonix

3:31 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home