laugardagur, maí 29, 2004

Jamm Jamm Jamm. Fór á þá allra merkilegustu tónleika sem ég hef farið á á miðvikudaginn, Pixies..ég hef farið á nokkra tugi tónleika og verð að segja mín stóð agndofa í fremstu víglínu allan tímann!! Get eiginlega ekki lýst því hvernig mér leið eða líður, því ég kann ekki svo svakaleg lýsingarorð. Alger snilld er það sem mér dettur í hug, ekki kannski frumlegt en hey allt sem segja þarf!

Erum búin að skíra kisann okkar en hann heitir Loki Sætilíus Bjarkason. Hann er bara mesta krúsið og maður gerir ekkert annað en að knassa hann, ég næstum gnísti bara tönnum. Hann er líka alger snilld. Svo finnst mér líka alger snilld að hægt sé að leigja tvær gamlar spólur á 200 kall á James Bönd, spólur sem eru ekkert svo gamlar. Þar er líka tilboð á súperdós og nokkrum tegundum af súkkulaði á 130 kall! Já ég er nörd, sit heima, með einhvers konar flensu, búin að vorkenna mér gífurlega, var eins og álfur í vinnunni og glápaði áðan á Coyote Ugly, pheew, uuuherm, vel leikin..ehe..

Já er sem sagt að fara til Lúndúna í júní, mjög spennandi, já mjög spennandi hoho en jæu hlakkar til, fæ að vera á hóteli og allt..Er að blaðra núna, sést að mér leiðist. Var að fá tvær nýjar kokkabækur og er að hugsa um að lesa yfir þær, set svo einhverja skemmtilega uppskrift inn ef ég prófa..sniðug

mánudagur, maí 24, 2004

Ok...ekki gekk það...en er að reyna að gera milljón hluti þessa dagana. Er orðin mamma, eða sko, vorum að fá okkur lítinn kettling á föstudaginn, sem er sætasti kisinn..8 vikna krúsídúlla ohhh...læt hér inn mynd bráðum eins og nýbakaðri móður sæmir jamm jamm
Svo var verið að bjóða mér til London í júní, með Hagaskóla en ég hef verið að hjálpa þeim að skipuleggja, já að skipuleggja fyrir aðra er mitt yndi en þegar kemur að sjálfri mér...oh well...Svo er náttúrulega bara soldið mikið að gera í vinnunni..líka sko og að leita af bíl sem er strembið!!!

Skoðaði myndir af Söru en verð að segja ég sá ekki nógu mikið af bumbu!!! En þú skemmtir þér bara perluvel í Denmark og ferð vel með þig elskan!!

Og hvað varð um uppskriftirnar..jú ein fljótleg hérna :
Svínakótilettur (lean, eða berja þær smá bara) setja þær undir grillið í ca 10 mín, snúa eftir 5. Setja svo ofan á blöndu af: Eitt rifið epli, vel af rifnum ost (edam er tilvalinn en á Íslandi einhver góður en ekki of feitur svo hann nái að bráðna fallega) og svo salt og pipar. Láta ostinn "gljáast" og voila, beint yfir hrísgrjón og kannski einhverja sósu með....

fimmtudagur, maí 06, 2004

Jæhæja!!! Það var nú mikið....ekkert búin að skrifa hér síðan jamm 27. jan...allt í lagi. Það er nú löng og leiðinleg saga að segja frá því..kom til Íslands og ekki með neitt net, svo fengum við okkur rosa adsl tenginu...en....fengum vírus strax í pc-inn og hún bara í molum. Tengdum þá við gamla lappinn minn, en hún orðin voða löt og fékk líka vírus í mallann sinn....æææ...náði þó að redda þessari elsku, en verð að henda hinni í viðgerð...tölvunördinn sjálfur gafst upp á henni, það held ég nú. Nú nóg um það, hér er ég, fer eftir þínum ráðum Dröfn og reyni að skrifa eitthvað skemmtilegt. Var t.d. á Kraftwerk tónleikum í Kaplakrika í gærkveld sem var fín afþreying, ekkert meira en ég bjóst við og ekkert minn! Bara fyndið og pjönku skrýtið. Þarna var sem sagt vel af karlmönnunum sem vorum komnir vel yfir þrítugt og fertugt, sem var frábært að sjá, aldrei held ég verið á tónleikum þar sem svona breiður aldurshópur kemur saman. Já fínt bara. Næst er það hins vegar Pixies og það ætti nú að vera stuð, jamm jamm eins og Jón Gnarr segir þegar Sigurjón blótar, jamm jamm jamm. Ekki má svo gleyma Placebo í sumar, í þriðja sinn..minnir mig á það, var að horfa á suður-kóreskan thriller um daginn og placebo lögin vóru stór þáttur í plottinu..uhumm..fín blóðug mynd en botnaði ekki alveg í öllu samt...mæli með að horfa á Pavillion, ef það er langt síðan þú sást hana eða jafnvel ef þú hefur ekki séð hana, zæt mynd hohoho

Nú er að gera matinn til rétt í þessu, gómsætur thai, uppskriftin er algerlega imbaproof ef það eru einhverjir sniðugir imbar sem þetta lesa hohoho :
2 matskeiðar peanut oil
660 gr kjúklinga bringur (skornar í þokkalega bita)
2 meðalstórir laukar "sliced thickly"
1 stór rauð paprika gróft niður skorin
400 ml kókosmjólk (ein dós sko)
1/4 (75 g) rautt curry paste
1 matskeið fish sauce (ekki láta blekkjast af lyktinni)
1/4 bolli af niðurrifnum ferskum basil
Kjúlli steiktur upp úr olíu, hann svo tekinn upp úr og settur til hliðar. Steikja lauk og papriku þangað til að laukurinn er orðinn mjúkur (ekki of lengi). henda svo kjúlla aftur í og bæta mjólkinni, pasteinu og fiskisósu og hræra þar til þetta fer að bubbla. Bæta þá basil og hræra aðeins. Bera svo fram með góðum jasmin hrísgrjónum....nammi nammi


Nú ættu allir að verða svangir ha!! Þeim sem finnst thai matur góður þeir ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum!! Allavega er Bjarki sáttur...

Kannski ætti ég að hafa þetta reglulegt hérna hjá mér, eina uppskrift á viku. Af því að það eru svo margir að lesa þetta hahahahha!!!! Nei en get sagt samt að næsta uppskrift er ekki af verri endanum : rif að hætti hússins!!! jamm jamm

Er að fara í óvissuferð með vinnunni á laugardaginn..gaman, mannstu Dröfn hvert við fórum árið 2000?? Þú varst nú í undirbúningsnefnd hahahahaha! En það er líka opið hús í Sunnuborginni á laugardaginn milli 11 og 13. Veit að ykkur dauðlangar til að koma ehe..
Er þetta ekki orðið fint Dröfn?? Þú ert nú ábyggilega eina kleinan sem lest þetta. Hvenær eigum við að halda Sigríði aftur??