föstudagur, apríl 29, 2005


Verð náttúrulega að setja inn mynd af nýju skónum mínum sem voru að koma af pósthúsinu, sooo happy!

fimmtudagur, apríl 28, 2005

Öll að hressast með flóabit á löppinni! Já þetta fylgir víst vorinu og ég er ekkert að vorkenna mér, finnst fínt og töff að vera með flóabit...ehermm

Annars þetta: Bjarka dreymdi Ryan (O.C. töffara með meiru) og ég hló svooo mikið þegar hann sagði mér..Það var einhvern veginn þannig að "Ryan" var staddur hér á landi og var að tala við Bjarka...veit ekki meir en finnst ansi skondið að hann skyldi dreyma svona. En jú erum búin að horfa á 20, já TUTTUGU af nýju O.C. Svo er ég komin á 9. þátt í ANTM, en veit ekki hvort ég ætti eitthvað að monta mig af þessu, ég er ekkert að monta mig, þetta kemur sjálfri mér jafn mikið á óvart. Sko, ef við værum með Skjá 1 eða á
líka þá værum við kannski að horfa á fleiri svona þætti, en þar sem við erum ekki með hann þá takmörkum við okkur...hoho
Skellti mér á dolluna og las þar tvo auglýsingabæklinga (úff djúpt lesefni það). Annar var frá BT. Þar sá ég Mp3 spilara á tilboði, ú langar í en held ég bíði aðeins, kannski get ég keypt hann annars staðar...á hnettinum... Hinn var ´Sumarbæklingur´Hagkaupa...þar sá ég að einn skemmtilegur ávöxtur hefur fengið íslenskt nafn... Litkaber...og getiði nú, hver er þessi ávöxtur? En þessi ávöxtur einhvern veginn brings up memories... Ekkert betra en að strolla á Portobello á laugardagsmorgnum (stundum sunnudags), koma við á ávaxtamarkaðnum, kaupa sér dagblað og setja svo og narta. Fara inn á pub eða bar og fá sér hádegismat, jafnvel horfa á fótboltann ef maður er ekki í "Boho" moodinu sínu. Þessa alls sakna ég, já stundum sakna ég Lundúna, alveg mikið smá. Hvert næst?

miðvikudagur, apríl 27, 2005

Jájá, ég gefst upp...neh segi svona en slappleiki hefur enn og aftur gert vart við sigþ Ég hef verið áskrifandi hjá honum Dr.Weil í nokkur ár og "hann" ráðlagði mér eftirfarandi eftir að hafa tekið smá próf hjá honum:

Antioxidant & Multivitamin Formula - View Ingredients...
The basic foundation for nutrition insurance. This formula is the key to safeguarding your immune system, especially in times of stress.



Dr. Weil’s Recommendation: Your High Priority Health Concerns
This Formula contains 3 Glucosamine and 2 Joint Support Formula.

.
This Formula contains 2 Omega-3s. More Info...
Price per day: $0.34



Dr. Weil’s Recommendation: Your Moderate Priority Health Concerns
This Formula contains 2 Vitamin B-Complex.


This Formula contains 4 Cal-Mag Citrate.


This Formula contains 2 Ginseng, 2 Cordyceps and 1 Ashwaganda.

þriðjudagur, apríl 26, 2005

Drôle comment le corps donne juste vers le haut quand vous avez besoin de lui plus!

Au lieu étudiant de moi ai regardé la mauvaise télévision, comme une colline d'arbre et le prochain modèle supérieur des Amériques, combien pathétique suis- moi ?

Finnst ekki gaman að vera lasin, langar í pepsi....buuuu
Geðraskanir
Fjölskyldan/samvinna
Aðferðir í starfi með fötluðum
Aðferðafræði rannsókna
Fatlanir og taugasjúkdómar
Óhefbundnar tjáskiptaleiðir
17 ein.

Gaman! Mikið gaman! Hlakkedí hlakk!

föstudagur, apríl 22, 2005

Já þetta með Ultimate playlistann er stórt dæmi...er byrjuð að henda niður fyrst hljómsveitum og svo ætla ég að finna lögin. Vinsamlegast setjið inn það sem ykkur dettur í hug... :)

The Cure

Blonde Redhead

The Smiths

Scossor sisters

Interpol

Joy Division

The Shins

Portishead

The Bravery

Ulrich Schnauss

The Thrills

The Ramones

Nirvana

Zoot Woman

Verve

New Order

Kings of Leon

Led Zeppelin

Rolling Stones

Simon and Garfunkel

Pixies

QOTSA

Sigurrós

Depeche Mode

White Stripes

Strokes

Muse

Yeah yeah yeahs

Coldplay

Powderfinger

David Bowie

Echo& The bunnymen

Fleetwood Mac

Slowdive

Björk

Blind Melon

Al Green

Otis Redding

Air

Beach Boys

Peaches

Red Hot Chilli Peppers

Beth Orton

God speed You Black Emperor

Aphex Twin

Chemical Brothers

4Hero

Kings of Convenience

Dolly Parton

Johnny Cash

Elliott Smith

Badly Drawn Boy

Jeff Buckley

Tricky

Radiohead

Royksöpp

Primal Scream

Leftfield

Kraftwerk

Belle and Sebastian

Damien Rice

Suede

Stereolab

Violent Femmes

Chicken Lips

Gomez

Nick Cave

U2

P.J.Harvey

My Bloody Valentine

Beck

Snow Patrol

Mazzy Star


.........meira coming soon.

fimmtudagur, apríl 21, 2005

Skolen skole....var að skipuleggja áðan með henni Helgu, skólalok mín. Hún er búin að taka þetta nám geyst og ég á leiðinni með að vera að klára vorið 2007 í stað 2008! Erum búnar að ákveða loka B.A. verkefnið og afar stoltar! En næstu 2 árin verða dáldið strembin en það er bara allt í lagi....ehehe...Púsluspil þetta er og gengur upp!! Meðaltal 17 einingar á önn :) Hjálpumst öll að...

þriðjudagur, apríl 19, 2005


Þegar maður á að vera að læra...
Ef ég ætti að setja saman svona ´The Ultimate playlist´, þá myndi ég sennilega lenda harkalega í því. Þar sem ég labba í og úr vinnunni hef ég ótæpilegan tíma til þess að hugsa um allt og ekkert eða þá hlusta á ekkert svo svakalega skemmtilegt útvarp. Ég er mikið búin að vera hugsa um þennan playlista minn upp á síðskastið, hvað ef ég gleymi einhverjum lögum? Endalaust til af uppáhalds lögum!! Endilega sendið mér línu eða comment um hvaða lög séu ómissandi. Fjárfesting í mp3 er á næsta leyti, hvort sem það verði 60GB Ipod eða iRiver, þá er hann á leiðinni....

Bjarki setti Galore diskinn með The Cure, allt of góður diskur, always!
Já og svo er annað sem ég þarf aðstoð við...hvað á ég að gjöra við lubbann á mér?? Svei mér ef ég er ekki bara komin með nokkur grá...hummm ;)

sunnudagur, apríl 17, 2005

Á sunnudögum er farið til skírnar!!!

Börnin okkar tvö heita: Loki og Örk. Við vorum heillengi að finna nafn, en höfum viðrað þetta við annað fólk, áhugasamt um ketti og velferð þeirra og komumst að þessari niðurstöðu.
Örk var sagt áðan við hátíðlega athöfn hérna í Bogahlíðinni, að hún héti Örk. Lítið og sætt nafn fyrir litla og sæta kisustelpu!


Svo ánægð!!
Kveðja,
Bjarki, Laufey, Loki og Örk :)

föstudagur, apríl 15, 2005

Til hamingju með afmælið Leo (Leonardo da Vinci sko).
Kallinn bara 553ja ára...
noh það er ekkert annað!!


Bjarkinn sagði í gærkveldi eftir að hafa klárað einu bestu pizzusneið sem við höfum bæði fengið á Fróni, að þetta skyldi nú fara í bloggið...nú hvað kunna margir að spyrja? Ég skal svara því í lýsingu á gærkveldinu:
Bjarki kom heim úr vinnunni með 4 bjóra, ekki stóra en fjóra. Hans beið ekki sjóðheitt pönnubrauð og enginn hummus. Það skipti engu því á borðið var settur hálfkald-volgur Leffe Blonde o ólífur fylltar osti. Einstaklega smart á þessu heimili. Nú er sá bjórinn var kláraður, var Warsteinerinn góði opnaður, sitthvort glasið og út við hurfum. Brrr..ískalt, norðanátt með sinni tilheyrandi hveralykt frá Nesjavöllum. Leiðin lá á Klink og Bang. Þar stendur yfir sýning, kennd við pólitík en til sýnis allskonar ádeilu-veggspjöld, fánar, teiknimyndir og videó. Þetta var fínt en sorglegt að fleiri skulu ekki hafa mætt. Sérstaklega þar sem við eða margir hér, elskum ekkert Bush eða Condolezzu og fl., þið vitið hvað ég á við...Flott flott og drykkir í bandarísku fánalitnunum drukknir. Svo héldum við Bjarkmundur yfir á Devitos (og hér byrjar svarið). Tvær sneiðar pantaðar. Úff vonbrigði. Hef nefnilega ekki verið 100% sátt við síðustu nokkur viðskiptin mín á Devitos. Þunnar og ostlausar sneiðar. Ekki sátt. Enda pizzuvön stelpa hér á ferð. En well oh well ekki hægt að grenja yfir einni pizzusneið endlaust. ,,Devitos dáið" hugsaði ég döpur. Leið okkar lá því næst á Kaffibarinn. Bjór fyrir manninn og rautt fyrir dömuna, rýnt í blöð en svo freistaði nýjasti þáttur Desperate Housewives okkur svo mikið að við ákváðum að stíga út úr reykjamekkinum. Bjarkilíus vildi þá endilega gera tilraun. Skoða pizzurnar á Kings Pizza (Lækjartorg). OK, gerum það segir daman hress sem fress en ansi köld. ,,Sjáðu hvað þessar líta vel út, eigum við að fá okkur?" segir strákurinn. OK. Namm namm og meira namm og daman tók gleði sína á ný. Afskaplega södd en sæl stukkum við upp í strætó heim á leið.

P.s. Við ræddum lítillega við manninn sem vinnur á Kings eða á Kings, þann sem var með Devitos frá upphafi. Mikill miskilningur að Devitos eigi Kings. Já málið er að hann eða þeir (veit ekki hvort hann sé margir) seldu nafnið Devitos með staðnum. Devitos er ekkert Devitos lengur. Devitos er bara uuu Doritos fyrir mér. Kings Pizza ber nafn með rentu enda kóngamatur og alls ekkert annað! Og þetta átti að fara í bloggið.
Hittums á Kings! ;)

fimmtudagur, apríl 14, 2005

Taka tvö.
Ýmislegt að gerast en get ekki, ekki alveg strax greint frá því hér, sorry en samt nei ég er ekki ólett ahhh argg..vissi að ég hefði gleymt einhverju í Kringlunni áðan. Já Laufey fór í Kringluna. Þar sem ég tel mig aðeins félagsfælna á daginn, þá er fínt að fara svona í fyrra lagi. Takmarkið með þessari ferð var að byrgja mig upp af grænu tei, enda segir Dr. Perricone að bara það að skipta kaffi út fyrir te, geti létt mann, meira að segja þó maður geri ekkert annað...ég hef reyndar drukkið grænt te lengi lengi, en prófaði að skipta út kaffinu þessa viku og viti menn og börn, ég þarf ekkert á þessum 10 kaffibollum að halda á dag! Svo bragðaði ég grænt hjá mömmu um daginn, sem var bragðbætt með vanillu og rommi og það var sæla and a half!!

...en já hvað er skemmtilegra en að skoða og pæla í Heilsuhúsinu eða í heilsuhorninu í Hagkaupum. Love it! Þeyttist um gólf Hagkaups, nei reyndar spígsporaði ég því það er eitthvað svo mannlegt í þar, enginn asi. Og svo endaði ég á salatbarnum þar, hann svo frábær og margt nýtt og gott.

Sagði við Bjarka að ég myndi hreinsa til úr skápunum okkar og var að ljúka við fataskápinn! SWEET!!! Blasta bara The Killers, The Bravery og Kings of Leon!! Svo er veðrið svo einkar hagstætt fyrir svona húsmóður eins og mig, sól og gjóla, að ég henti tveimur hvítum lökum út á snúru, núna líður mér eins og söguhetju. Þetta er eitthvað svo pictureesque finnst ykkur ekki?

Þrátt fyrir að vera á kafi í verkefnavinnu, þá leyfi ég mér að kíkja á opnun American vs. American sýningunnar í klink og bang. Um hana sér Eva hans Eldars og svo verður eitthvað haldið áfram á KB. Ætti að vera gaman.
Hugsa að ég skelli í eina uppskrift af pönnubrauði og einn skammt af hummus, uppáhald fyrir uppáhald :)
Lífið leikur við mann og í dag að minnsta kosti neita ég að trúa draumaráðningum.....



fimmtudagur, apríl 07, 2005

Stelpa vaknar. Stelpa labbar í vinnuna með (m)agabeltið sitt. Stelpan vinnur í 8 tíma, með 2x 20 mín pásum.Stelpa labbar aftur heim, kannski aftur með (m)agabeltið á sér. Stelpa fer heim. Stelpan er þreytt núna. Stelpa athugar tölvupóst. Stelpan borðar kvöldmat. Stelpan fer að læra. Stelpan hættir að læra og fær verðlaunin sín: O.C. (skamm Dröfn), Lost (skamm Dröfn og Hringur), Desperate Housewives (skamm skamm) og fleira. Ekki mikið annað að gerast hjá stelpunni, jújú,helgarnar eru fínar og aðeins öðruvísi enda er ég ekki með lykla að leikskólanum og því ekkert point í því að labba þangað eldsnemma á laugardags og sunnudagmorgnum...

En lífið er yndislegt, svo margt sem minnir mann á þá staðreynd, fréttir úr heiminum og annað. Er svo heppin með flest og flesta í kringum mig. :)
Back to the books, enda eru fim og fös heima-læra-dagar, en einnig með (m)agabeltinu.