fimmtudagur, júlí 28, 2005
You are Kip Dynamite and you love technology.
Which Napoleon Dynamite character are you?
brought to you by Quizilla
Kannski eitthvað til í þessu en ekki mikið. Ég valdi t.d. meat en ekki nachos...svo finnst mér ekkert skemmtilegast í heiminum að horfa á skvísur á netinu, er með karlmannlegri rödd en hann og oftar í góðu skapi. Og já gleymdi, á ekki svarta kærustu :)
miðvikudagur, júlí 27, 2005
Búin að horfa á gríðarlega mikið af bíómyndum síðustu kvöld: Crash, Birth, Wicker Park, Boogeyman, The Girl Next Door, Fantastic 4, A lot like love, Napoleon Dynamite, War of the Worlds, The Amitywille Horror, Hostage, Wedding Date, Capturing the Friedmans, The Woodsman, Coach Carter, The Longest Yard...og kannski fleiri. Svo ég tala nú ekki um alla þættina. Ok, síðustu vikur kannski, en ekki margar. Það er mikið áhugamál á þessu heimili að liggja undir sæng í köflótum náttbuxum að horfa á "vídjó". Afar heimakært fólk hér á bæ. Kúrukært líka.
Nú er ég að passa að ýta ekki of fast á takkana, má ekki vekja Bjarkann sem vonandi sefur vært. Hann er ekki í sumarfríi greyið :(
Framundan: stórafmæli, brúðkaup,útilega, próf og svo veturinn.
þriðjudagur, júlí 26, 2005
Sat við litla eldhúsborðið áðan að borða morgunmat (sem ég geri reyndar ekki oft) og las þar einnig Fréttablaðið. Nú, kemur kannski ekki mikið á óvart. En ég fór að hugsa. Ég á einn bróður sem er rosa duglegur. Hann byrjaði 8 ára að fara á siglinganámskeið og svo seinna fór hann að æfa stífara. Úr varð að hann varð, svo ég segi sjálf frá, fremstur allra siglingamanna hérna á landinu litla. Þegar hann var tvítugur, fór hann á sína fyrstu Ólympíuleika og jiii hvað stóra systir var stolt. Ekki bara að fara þangað alla leið til Sydney, heldur bara það að hann var að fara að keppa í siglingum. Siglingar, á Íslandi!! Hugsið ykkur að æfa á veturna!! Brrr....Nú, svo hélt hann áfram næstu 4 árin að æfa stíft og bæta sig og svo mætti minn galvaskur á ÓL í fyrra í Aþenu. Auðvitað var hann mikið búinn að keppa mikið erlendis í millitíðinni og einnig var hann búinn að eyða meirihluta tímans á Suður Frakklandi í æfingabúðum. Þar tók hann upp á því að byrja að hjóla sem hluta af æfingarútínu. Ég man oft að þegar við töluðum saman hvað mér fannst við ótrúlega þrjósk systkini á þessum tíma. Hann í Frakklandi á einhverri eyju, fékk lítinn sem engan vasapening og borðaði næstum bara hrísgrjón og cheerios, og svo ég í London í einhverri láglaunavinnu, og lifði á ódýru pasta og grjónum. Já hlýtur að vera í genunum.
Já ég minntist á hjólreiðarnar, allavega, núna er hann orðinn fremstur okkar í þeim. Þ.e. hann fór að keppa og vinnur hann allar keppnir hér og nú síðast "Tour de Föroyar", þar sem hjólaðir voru kannski um 100 km (og meira) á dag í 5 daga. Vá segi ég bara, það eru nokkuð margir kílómetrar. Síðan kom kappinn beint heim og beinust leið í vinnuna. Já life goes on ekki satt? En það súrasta við þetta er að ekkert var fjallað um þessa keppni í fjölmiðlum. Ójú, í útvarpsfréttum var sagt að hann hefði unnið "Tour de FRANCE" , sem væri frábært....
En hvaða íþrótt tekur hann næst?? Maður bíður spenntur ;) Einnig, hvert fer hann næst? Hann er búinn að fara um allan heim. Ótrúlega lánsamur :)
Ég allavega tileinka honum þessa færslu mína sem er orðin vel löng, ótrúlega stolt af honum! Til hamingju Hafsteinn!!
Hann er okkar Lance, no doubt! Eða bara, hann er okkar Hafsteinn ;)
sunnudagur, júlí 24, 2005
Dear Laufey,
I am looking for a full time live-in, female governess Nanny. Our house contains 8 bedrooms, 10 bathrooms, sitting room, dining room, a kitchen, office and a playroom nursery for all the activities. There are 8 household working and two drivers, plus our own chiefs.
Family has 2 children Female 4 years; Female 20 Months. Nanny will take care of both, and start work as soon as possible.
The children like to do lot of things during the morning and evening hours.
Our requirements:
Work description: There are no rules but outline of daily duties which will be handled to you in your first day work, and there are no religious requirements. My religion is very important to me, but it is also very private. I do not force my beliefs and/or values upon anyone who has not asked me to share with them and in the end we all believe in God.
Responsibilities will be as follow:
1. The position requires that you take care of the cognitive, psychomotor and affective development. Particular emphasis should be on developing the child's English. Attention should be given to developing the child's socialization skills including good habits, manners and self-discipline. The mother's requests in this regard must be respected at all times.
2.A nanny's responsibilities are termed 'Nursery Duties' (looking after the children and their belongings only). This will not include washing, ironing and cooking for them but will be cleaning their nurseries and/or bedrooms. You will not do general household duties other than those to do with the children. You will take full sole charge of the child.
Deities such as:
Tidying toys away at the end of the day
Dirty clothes in the linen basket
Deliver and collect Children from nursery if so, School and after school run
Playing and general upbringing during the day
Bath and prepare for bed
Shopping (minimal top-up only)
Encouraging writing, drawing, painting and other crafts
Toy and play management
Arranging social activities, e.g. lunch or tea invitations, escorting to parties, buying of presents
Playgroups for the children
Occasional periods of unsupervised responsibility for all needs of children, Occasional deliveries, collections, inspections of the household
Visits to the park
Library-Visits and book rotation
Discipline
Education: college or preferably university degree
Certificates: as many as possible
Childcare: as many as possible
Applicant must be a SWIMER
We are offering:
Accommodation: Live – in nanny, you will have your own private bedroom (bathroom) and sometime you need to share if we are not at home, e.g. on weekend, family home and abroad. You are provided with full board and lodging. Other living costs are for your own account e.g. telephone calls.
Holiday: You are required to work six days a week and one day off. General working hours are breakfast time until bath time/ bed time, plus sleeping together with the child during the night. "Full Time"
Salary per week: Salary will be$400- $500 a week US dollar, almost £200 - £300 -net per week. The UAE has no tax and at the same time it is a live in position. That means $ 2000 a month is the range of Nanny, nurses and teachers salary.
If you are interested please send me your CV, Resume, References, or any certificates and a recent picture. Thank you.
Don't hesitate and feel free to ask any thing you would like to know.
Whether you're still interested or not please let me know, thank you.
Take care and wait to hear from you.
Kind Regards,
Moza.
þriðjudagur, júlí 19, 2005
mánudagur, júlí 18, 2005
Erum komin heim í borgina, jú alveg fínt en það er líka alveg fínt að týna sér í uppsveitum landsins góða. Ekkert að hugsa um nema sofa, lesa, borða, drekka og sofa. Mmmmm....verðið að prófa! Allavega, ég missti af Sigríðarkveldi á föstudaginn, það hefur væntanlega verið stuð en kannski voru þær sofnaðar klukkan 23:52 en ég fékk ekkert reply.... ;) Hey, kannski er ég í ónáðinni fyrir að hafa misst af Siggu ?? Neh, held ekki, þær eru sweet þessar snátur.
Nú tekur við allsherjar þvottur á búi og börnum þess, eitthvað sem setið hefur á hakanum. Sumarfrí er lovely, en væri svooo mikið til í að vera í úglöndum....er farin að skoða framhaldsnám, já ég veit en eftir 2 ár er ég búin og þá kannski á stelpan eftir að vilja læra meira og held að ég vilji bara gera það strax á eftir. Klára hér og svo út mmmm í Columbia University í Masterinn....segi svona, hugmyndir fjúka hér eins og sápukúlur í sætir golu.
laugardagur, júlí 16, 2005
föstudagur, júlí 15, 2005
fimmtudagur, júlí 14, 2005
Fórum sem sagt út út bænum á föstudaginn, brunuðum þreytt eftir vinnuvinuna sem þá var á enda, upp í sumarhöll fjölskyldunnar (hoho). Þar er bara lúxus að vera en við héldum samt úr hlaði rétt eftir hádegi, á Siglufjörð. Ahh, þessi bær. Er ég svona gömul sál eða hvað? Yndislegt, vorum hjá fjölskyldu vinar Bjarka, en þau bæði sáu um Þjóðlagahátíðina sem og um Síldarminjasafnið. Sem er by the way, lang flottasta safn okkar landsmanna! Já, fjörðurinn er sæla! Og svo var náttlega kíkt aðeins út á lífið, Allinn Sportbar, Kaffi Torg og svo einn annar staður þar sem Milljónamæringar voru í góðri sveiflu með látúnsbarkanum Bjarna Ara og Bogomil Font sem steig óvænt á svið með ódýrt freyðivín. Löng saga. En þarna dansaði fólk einhvurs konar samkvæmisdansa og við bara göptum af undrun en samt gleði, undrun á því hvernig þetta er enn þá og gleði vegna þess að þetta er ennþá svona :) En já, eigum pottþétt eftir að kíkja á Sigló aftur. Er svoo gaman að "prófa" svona önnur bæjarfélög, ekki hanga endalaust í borginni brjáluðu.
Nú, svo fórum við á "Agureyri", stutt stopp þar á leið í Vaglaskóg. Já, það var vor í Vaglaskógi...sváfum þar í tjaldi í tvær nætur, rigning og læti en afar hlýtt og kósý. Snilld bara að vera í afslappelsi náttúrunnar. Svo var það heimsókn á Húsavík, Mývatn og fleira. Restin af ferðasögunni ásamt létt-skondnu ástæðu þessa stutta stopps í borginni, seinna.
Chao luvs ;)
sunnudagur, júlí 03, 2005
Margt að gerast þessa stundina og þá er gott að hafa eitthvað til að stytta sér stundir. Löööng saga...
laugardagur, júlí 02, 2005
Vaknaði svo seint í dag, sökum hausverks og eyrnaeymsla og tók hreiðrið í gegn. Já þá erum við að tala um allt, meira að segja afþurrkun gólflista! Jebb, the girl has gone mad. En manni líður svoo vel í hreinu plássi. Mæli eindregið með því að hlusta á Miles Davis (Kind of Blue) á með á þrifnaði stendur.
Það er komið trampólín í garðinn, ég stend og horfi á það. Minnist þess þegar við tókum bekkinn okkar úti (6stk yndislega verulega einhverf börn) og fórum í svona Leisure Centre nálægt skólanum einu sinni í viku og fengum aðstoð þjálfara til að "kenna" krökkunum að hoppa á trampólíni. Öryggið alltaf í fyrirrúmi, einn fullorðinn stóð í hverju horn og þjálfari enda vorum þetta risastór, ferköntuð "keppnis"-trampó. Ó hvað það var gaman og ó hvað það var oft erfitt að ná þeim niður eftir þeirra skipti. Miklir eltingaleikir hoppandi hahahha. Fyndið. Doiing doiing doiing doiing. :) Sakna svoo vinnunnar minnar. Núna á ég 5 vinnudaga eftir í leikskólanum. Kvaddi strákinn "minn" í gær, þar sem hann var að fara í sumarfrí. Það var bara sorglegt og soldið erfitt. Búið að vera erfitt en oft ofboðslega skemmtilegt enda er drengurinn snillingur, þó ekki einhverfur fyrir túkall, en það er allt önnur saga. Svo tekur við langt og gott og langþráð sumarfrí og á eftir því nýja vinnan mín. Spennandi ójább.