Jæhæja hvar skal maður nú byrja huh dæs dæs! Allavega skal bara byrja á byrjuninni...Á miðvikudagskveldinu 21. júlí, lögðum við
Bjarkilíus sætilíus upp í ferðina okkar. Bryjað var að bruna upp í
Borgarfjörðinn snotra og gistum við í fjölskyldubústaðnum góða, eina nótt. Ohhh hvað það var gott að komast út úr blessaðri borginni. Vöknuðum í bongóblíðu á fimmtudaginn og héldum þá norður á leið. Með nokkrum minniháttar stoppum, komumst við til
Akureyrar og versluðum allt frá ogvodafone útilegu stól til áfengis nammmm. Nú svo lá leið okkar á
Húsavík, nei ekki til að heimsækja Birgittu eða bittu eins og ég óvart sagði, heldur frændfólk
Bjarkans. Setið var þar í góða veðrinu dágóða stund en einnig voru foreldrar hans og systur báðar í kaffistoppi þar. Nú, við fórum þar á
essó ég og Bjarki og fengum okkur eina sjoppuborgarann í ferðinni JÖMMÍ!! Svo sátum við á pöb/restaurant við höfnina, úti, sötrandi bjór með fólkinu hans.
Allavega, eftir það stopp, brunuðum við upp
Tjörnesið góða í heiðskíru og sáum yfir allann flóann ohhh dásamlegt. Komum um 8 í
Ásbyrgi...Fá orð fá lýst minni eilífðar ást á þessum stað. Þó svo að þegar ég var þarna síðast þá mátti tjalda inni í botni, þá sætti ég mig alveg við að vera á hinu tjaldsvæðinu. Sátum og sötruðum, vöknuðum í besta veðri sem ég hef upplifað á Íslandi í langan tíma!! Spiluðum tennis og lékum með frisbee, grilluðum, fórum í göngur og afslöppuðumst svo um munar. Á laugardeginum, brunuðum við austur á
Egilsstaði, sáum
Dettifoss á leiðinni sko..Bjarki að sjá margt í fyrsta sinn sko..Þar fórum við í bústað á
Einarsstöðum, sko rétt hjá Egilsstöðum, og gistum í 3 nætur. Mjög gaman og gott, með foreldrum og Höllu systur Bjarka. Lögðum svo af stað í gær suður, stoppuðum eina nótt í
Skaftafelli, þar sem gengið var meira og grilluðum einar stærstu svínakótilettur sem sést hafa hérna megin Atlantshafs!! Túristarnir göptu bara á okkur, þar sem við stóðum á grillsvæðinu. Við vorum eiginlega bara svolítið feimin við steikurnar... Brunuðum í
Vík í dag að hitta fleiri ættingja, Bjarki málaði fyrir frænku sína og svo fór hann upp á elliheimili að grátbiðja háldraða frænku sína um
RABBABARAGRAUT!!! Hún sko varla þekkti hann fyrst...
Nú svo erum við bara komin núna, soldið sorgmædd yfir að ævintýrinu sélokið í bili en mjög glöð að sjá
Loka okkar og að bíllinn klikkaði ekki á okkur þessa
1550 km!!!